Búðin er ekki vinsæl fyrir ekki neitt, enda pakkfull af alls konar góðgæti. Ólífubarinn er ekkert slor. |
Fleira gúmmilaði var til sölu, til dæmis fann ég þetta hunang með heilli vaxköku ofan í! |
Svo, af því að þetta er í Rhode Island þá mátti að sjálfsögðu kaupa pastasósu fyrrverandi borgarstjórans, en hann er ansi skrautlegur karakter og var að lokum stungið í fangelsi fyrir spillingu. Íbúum í Lil' Rhody virðist slétt sama og dýrka Buddy og eflaust pastasósuna hans líka. |
Mér var á endanum bannað að taka myndir inni í búð nr. 1 svo ég dreif mig bara í búð nr. 2. Þar fann ég þessar servíettur. |
Mér finnst að þessar servíettur ættu að heita viskustykki. |
Ég held að það sé 1000 sinnum skemmtilegra að borða ís með svona risaeðlusykurstrauti en án þess. |
Ítölsk matvöruverslun getur varla staðið undir nafni ef kökurnar vantar! |
Þessar espressóskeiðar eru algjört æði. |
Við álpuðumst næst inn í búð sem skreytt var Undralandsfígúrum enda ansi undarleg. |
Hvern vantar ekki svona skilti? |
Því næst kíktum við í lítið sætt gallerí. |
Þessi málar ný mótíf eins og gamall mestari. |
Björn Leví hefur lengi dreymt um að opna súkkulaðihús (hann drekkur ekki kaffi). |
Við enduðum daginn á Pastiche Fine Desserts & Café, en pastiche þýðir, merkilegt nokk, hrærigrautur eða eftirlíking. |
Úr nógu var að velja og við fórum glöð heim með hrærigrautinn okkar. |
Vá ... er von að maður verði svangur!
SvaraEyðaMatur er alveg eitt af mínum uppáhaldsáhugamálum :) Rosa gaman að borða allt með augunum líka.
SvaraEyðaÚff, ég er alveg tilbúin í kvöldmatinn núna ;) Allt frekar girnó þarna!
SvaraEyða