Í vinnunni drekk ég ávallt úr hemúlsbollanum, enda erum við bæði vísindamenn. |
Kaffi, kaffi, kaffi, kaff,
kaffi, kaffi, kaffi.
Kaffi, kaffi, kaffi, kaff!
Kaffi, kaffi, kaffi.
Þetta segir allt sem segja þarf.
Mér finnst unaður að drekka kaffi og fæ því miður aldrei nóg af því. Miðað við það hversu mikilvægan sess kaffi skipar í lífi mínu á ég harla lítið af kaffivörum, aðeins eina aumingjalega IKEA pressukönnu sem er við það að brotna. Eiginmaðurinn drekkur ekki kaffi svo kaffidrykkja einskorðast við vinnuna. En ef ég mætti ráða...
| Hellti ég upp á fyrir gesti í þessari... |
| Bæri það fram í þessari... |
| Ég heillast alltaf að hlutum með einhvers konar mystísku ívafi enda er ég nátthrafn að eðlisfari. |
| iittala la la la la! Mynd héðan. |
| Pweddy! Samt kannski aðeins of sykursætt fyrir minn smekk, enda drekk ég kaffið mitt sykurlaust. Þessir íslensku kaffistenslar eru svo mikið yndi. Mynd héðan. |
| Þessi er á óskalistanum, bara að skella á hellu. |
| Hver segir svo sem að það þurfi endilega að bera fram kaffi í kaffiglösum? |
| Svo má alltaf láta sig dreyma... |
| Dreym dreym... |
| Dreym dreym! Hannað af Yaniv Berg. |
![]() |
| Ert þetta þú, R2D2? Myndir héðan og héðan. |
| Ert þetta þú, Pacman? |
| Ert þetta þú... ég hef ekki hugmynd um hver þú ert. Mynd héðan. |
| Og óvini mínum gæfi ég kaffi í þessum. |
![]() |
| Ég get ekki endað á klósettkaffi... Mynd héðan. |
(Presto 02811 12-Cup Stainless Steel Coffeemaker, Stelton 1-Liter Vacuum Jug, iittala Taika Espresso Cup and Saucer, Bialetti Moka Express Stovetop Espresso Maker,Konitz Les Fleurs Chez 12-Ounce Mugs, Bodum Pavina 2.5-Ounce Double-Wall Thermo Glasses (Espresso/Shot), Bugatti Diva 15-Bar Pump Espresso Machine, Francis Francis! 206002 Espresso Machine, Helium Espresso Machine.)

