Ég bullaði túnfiskssalat og það varð svona svakalega gott. Hér er uppskriftin (þetta er allt mjög sirkabát, smakkiði til):
2 túnfisksdósir, hellið vatni af
2 msk sýrður rjómi
4 msk majónes
1 lítill laukur, smátt saxaður
3 egg, smátt söxuð
dass svartur pipar
dass sítrónupipar
dass bragðbætt salt (nokkurn veginn eins og kryddið á franskar kartöflur)
dass paprikuduft
dass karrí (ekki þetta íslenska heldur indverskt curry)
Hrærið öllu saman og borðið með bestu lyst. Karríið er aðalmálið í uppskriftinni og gerir þetta sérlega ljúffengt.
Sýnir færslur með efnisorðinu matur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu matur. Sýna allar færslur
16.7.11
4.3.11
Ítalskur dagur
![]() |
| Búðin er ekki vinsæl fyrir ekki neitt, enda pakkfull af alls konar góðgæti. Ólífubarinn er ekkert slor. |
![]() |
| Fleira gúmmilaði var til sölu, til dæmis fann ég þetta hunang með heilli vaxköku ofan í! |
![]() |
| Svo, af því að þetta er í Rhode Island þá mátti að sjálfsögðu kaupa pastasósu fyrrverandi borgarstjórans, en hann er ansi skrautlegur karakter og var að lokum stungið í fangelsi fyrir spillingu. Íbúum í Lil' Rhody virðist slétt sama og dýrka Buddy og eflaust pastasósuna hans líka. |
![]() |
| Mér var á endanum bannað að taka myndir inni í búð nr. 1 svo ég dreif mig bara í búð nr. 2. Þar fann ég þessar servíettur. |
![]() |
| Mér finnst að þessar servíettur ættu að heita viskustykki. |
![]() |
| Ég held að það sé 1000 sinnum skemmtilegra að borða ís með svona risaeðlusykurstrauti en án þess. |
![]() |
| Ítölsk matvöruverslun getur varla staðið undir nafni ef kökurnar vantar! |
![]() |
| Þessar espressóskeiðar eru algjört æði. |
![]() |
| Við álpuðumst næst inn í búð sem skreytt var Undralandsfígúrum enda ansi undarleg. |
![]() |
| Hvern vantar ekki svona skilti? |
![]() |
| Því næst kíktum við í lítið sætt gallerí. |
![]() |
| Þessi málar ný mótíf eins og gamall mestari. |
![]() |
| Björn Leví hefur lengi dreymt um að opna súkkulaðihús (hann drekkur ekki kaffi). |
![]() |
| Við enduðum daginn á Pastiche Fine Desserts & Café, en pastiche þýðir, merkilegt nokk, hrærigrautur eða eftirlíking. |
![]() |
| Úr nógu var að velja og við fórum glöð heim með hrærigrautinn okkar. |
15.2.11
Á vegi mínum varð (nr. 2)
| She Wears Flowers: Þetta er aðeins of sykursætt fyrir minn smekk (fíla Bítlatilvísunina samt). Ég rannsaka aftur á móti sjónskynjun svo hver veit nema ég geri eitthvað svipað með örlítið öðrum skilaboðum? |
![]() |
| Made It on Monday: The Hungry Caterpillar (eða kálormurinn sísvangi, eins og mér finnst að ætti að kalla hann) er klassísk barnabók sem ég held nokkuð upp á eftir að ég keypti hana á 50 sent á bókasafninu. Hérna er kálormsafmæli þar sem boðið var upp á allt sem kálormurinn át -- nema ef til vill laufblaðið. |
| Ruffles 'n' Such: Nokkuð töff sjal. Þetta virkar einfalt, en það gerði líka sjalið sem tók mig ár að prjóna... |
![]() |
| Scissors and Spatulas: Gamalt þvottabretti var spreyjað svart og gert að hengi fyrir staka sokka. Þar mega þeir dúsa þar til sokkaskrýmslið skilar hinum sem passa við. |
| Jewelera: Fallegt (og dýrt). |
| Woodland Belle: Örgarður í hálsmeni. |
| Just Another Hang-Up: Ótrúlega auðveld uppskrift að brauði sem ég hygg prófa bráðlega. |
Efnisorð:
afmæli,
brauð,
bækur,
fiðrildi,
garður,
grafík,
hálsmen,
jurtir,
kálormur,
matur,
sjón,
sjónpróf,
sjónskynjun,
sjöl,
sokkar,
stafir,
The Hungry Caterpillar,
þvottabretti
14.2.11
Kökusleikjóar!
Ég hef einu sinni smakkað kökusleikjóa og þeir voru einkar ljúffengir. Hér eru leiðbeiningar. Ég reyndi að gera svona með skelfilegum afleiðingum. Ég gerði nokkur reginmistök, þau stærstu voru að halda að það væri allt í þessu fína að nota tannstöngla í stað pinna. Svo reyndist ekki vera. Annað var að nota óvart súkkulíki í stað súkkulaðis. Bjakk :-Þ Njótið frekar þessara fallegu mynda.
16.1.11
Namm Japan
Stundum fer ég á Haruki Express í hádeginu og nær undantekingarlaust fæ ég mér:
California Roll:

Almond Crush Pocky Sticks:

Og síðast en ekki síst:

Ramune er ekkert nema dýrt gosvatn. Það er samt unaður að drekka það því maður drekkur það fyrst í sig með augunum.

Flaskan er svo falleg í laginu, liturinn svo skrýtinn og svo er það náttúrulega rúsínan í pylsuendanum: Kúlan sem dettur ofan í drykkinn þegar maður opnar hann. Þetta gerir það að fá sér Ramune að athöfn.

En ef maður er ekki svangur má alltaf fá sér svona (Sushi Shirts):
California Roll:
Almond Crush Pocky Sticks:
Og síðast en ekki síst:
Ramune er ekkert nema dýrt gosvatn. Það er samt unaður að drekka það því maður drekkur það fyrst í sig með augunum.
Flaskan er svo falleg í laginu, liturinn svo skrýtinn og svo er það náttúrulega rúsínan í pylsuendanum: Kúlan sem dettur ofan í drykkinn þegar maður opnar hann. Þetta gerir það að fá sér Ramune að athöfn.
En ef maður er ekki svangur má alltaf fá sér svona (Sushi Shirts):
Langar þig í kjöt? Langar þig í fisk? Langar þig í ávexti, eða kannski grænmeti?
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




















