Síður

Sýnir færslur með efnisorðinu skrautmunir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu skrautmunir. Sýna allar færslur

18.1.11

Úti inni

Einhvers staðar las ég að það eitt að hugsa um gróður og náttúru bæti líðan fólks. Það er að minnsta kosti alveg víst að mannfólk þróaðist ekki í þeim aðstæðum sem nú tíðkast á vesturlöndum; rými eru lokuð, smá, grá.

Grænt gras inni sem úti.




Mig hefur lengi langað til að færa náttúruna til mín, gera mér lítinn skóg inni í svefnherbergi.





Kannski ég fái mér bara hobbitaholu...


(Leiðbeiningar fyrir steinamottu: http://www.craftster.org/forum/index.php?topic=233971.0)
(Kálpúði: http://www.etsy.com/listing/58126972/so-succulent-pillow)

16.1.11

Í búið

Ég veit harla lítið um hönnun svo ég finn meira eða minna bara hönnunarvörur sem búsáhaldabúðir á Íslandi segja mér að mér eigi að finnast flottar. Það virkar hjá þeim.

Tilgangslaust og fallegt (eitthvað svolítið geimverulegt við þessa sítrónupressu):


Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig:


Væri nú ekki gaman að setja fallega kveðju inn í svona kertastjaka?


Þar sem við vorum að kaupa svaka græjubrauðrist sem einnig sýður og steikir egg (ó, Ameríka) þá verðum við að eiga eggjabikara, er það ekki?



(Alessi PSJS Juicy Salif Citrus Squeezer, Eva Solo Smiley Bowl, Pernille Vea Galerie Candleholder, Rosendahl Grand Cru Egg Cup)